Hópurinn sem mætir Svíþjóð í Halmstad
HSÍ

Íslenska kvennalandsliðið mætir Svíþjóð öðru sinni í Halmstad í dag, laugardaginn 28. nóvember. Leikurinn hefst klukkan 16:15 að íslenskum tíma og verður í beinni útsendingu á RÚV.

Arnar Pétursson teflir fram sama hópi og í 29–28 sigrinum í Malmö á fimmtudag að undanskilinni Elínu Klöru Þorkelsdóttur. Hún meiddist í fyrri leiknum og missir af Evrópumótinu. Leikurinn í dag er sá síðasti í undirbúningi Íslands fyrir EM en liðið mætir Slóveníu í fyrsta leik sínum á mótinu í Oradea fimmtudaginn 3. desember.

Markmenn

Hafdís Renötudóttir (Valur) 83/5
Sara Sif Helgadóttir (Haukar) 28/0

Aðrir leikmenn

Alexandra Líf Arnarsdóttir (Haukar) 8/3
Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín (Thüringer HC) 19/11
Díana Dögg Magnúsdóttir (Blomberg-Lippe) 78/104
Elín Rósa Magnúsdóttir (Blomberg-Lippe) 45/94
Elísa Elíasdóttir (Valur) 36/35
Katrín Anna Ásmundsdóttir (Fram) 27/44
Katrín Tinna Jensdóttir (HH Elite) 40/48
Lilja Ágústsdóttir (Sachsen Zwickau) 30/24
Lovísa Thompson (Benfica) 44/84
Matthildur Lilja Jónsdóttir (ÍR) 14/1
Rakel Oddný Guðmundsdóttir (Haukar) 17/22
Sandra Erlingsdóttir (ÍBV) 52/218
Sara Dögg Hjaltadóttir (ÍR) 10/13
Sonja Lind Sigsteinsdóttir (Haukar) 10/10
Thea Imani Sturludóttir (SCM Craiova) 101/241

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top