Staða Daniels Birkelund, þjálfara Þórs, var til umræðu í nýjasta þætti Handkastsins eftir enn eitt tap liðsins í Olís-deild karla. Gengi Þórsara á tímabilinu hefur verið undir væntingum en liðið stendur frammi fyrir mikilvægum leikjum í fallbaráttu deildarinnar fyrir jól. „Ef við værum í fótbolta og þetta væri enski boltinn þá værum við farnir að tala um að það væri farið að hitna undir Daniel Birkelund. En það hefur ekki verið menningin síðustu ár að félögin séu að reka þjálfara. Þessi árangur fyrir norðan er hins vegar ekki ásættanlegur,“ sagði Stymmi klippari. Davíð Már Kristinsson sagðist þakklátur fyrir að sú menning að reka þjálfara í tíma og ótíma hefði ekki fest sig í sessi í íslenskum handbolta. Hann benti jafnframt á að töluverðar breytingar hefðu orðið á leikmannahópi Þórs frá síðasta tímabili. „Fyrir það fyrsta er ég mjög þakklátur fyrir að handboltinn sé ekki hluti af þeirri menningu að það sé verið að ráða og reka. Auðvitað eru þetta vonbrigði. Þeir eru með nýtt lið, fjóra erlenda leikmenn og spila öðruvísi handbolta en í fyrra. Þeir voru líka mjög lélegir fyrir áramót í fyrra en voru síðan betri eftir áramót,“ sagði Davíð Már. Í kjölfarið beindi Davíð Már sjónum sínum að markvörslu Þórsliðsins og sagðist vilja sjá meira frá serbneska markverðinum Nikola Radovanovic. Þá benti hann á mikilvægi þeirra þriggja leikja sem Þórsarar eiga eftir fyrir jól en liðið mætir Selfossi, HK og Víkingi. „Þetta eru stórir leikir fyrir þá og þeir verða að fara að sækja einhver stig,“ sagði Davíð Már. Þór situr í 10. sæti Olís-deildarinnar með sex stig, jafn mörg og HK sem situr í 11. sæti deildarinnar en á leik til góða. Þórsarar töpuðu gegn Fram á heimavelli í síðustu umferð 27-34 en liðið hefur tapað fimm deildarleikjum í röð og átta af síðustu níu leikjum sínum í Olís-deildinni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.