Ísland tapaði stórt gegn Svíþjóð í lokaleik fyrir EM
HSÍ

Ísland og Svíþjóð mættust í seinni vináttuleik þessara þjóða en Ísland vann fyrri leikinn með einu marki eftir frábæra frammistöðu. Íslenska liðið átti aldrei séns í Svíanna í dag og eftir þungan fyrri hálfleik hjá stelpunum okkar voru Svíarnir yfir með tíu mörkum í hálfleik, 19-9.

Svíar gáfu ekkert eftir í þeim síðari og þrettán marka tap staðreynd en lokatölur 34-21 í síðasta leik stelpnanna okkar sem hefja leik á Evrópumótinu í næstu viku. Ísland leikur í A-riðli Evrópumótsins í Oradea þar sem liðið mætir Slóveníu 3. desember, Svartfjallalandi 5. desember og Ungverjalandi 7. desember.

Sandra Erlingsdóttir var atkvæðamest í liði Ísland með sex mörk. Díana Dögg Magnúsdóttir, Lovísa Thompson og Sonja Lind Sigsteinsdóttir skoruðu allar þrjú mörk og aðrar minna. Sara Sif Helgadóttir varði ellefu skot í leiknum í marki Íslands og Hafdís Renötudóttir varði fjóra bolta.

Clara Lerby og Clara Petersson Bergsten voru atkvæðamestar í liði Svíþjóðar en þær voru báðar með fimm mörk og aðrar minna.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top