Sara skoraði tíu og Ísland tryggði sér sæti á EM
HSF

U17 ára landslið Íslands kvenna tryggði sér sæti á Evrópumótinu með 21–17 sigri á gestgjöfum Færeyja í Þórshöfn í dag. Sara Sveinsdóttir skoraði tíu mörk, Helga Jenný Vigfúsdóttir bætti við sex og Freydís Ragna Kristjánsdóttir varði 12 skot í marki Íslands.

Ísland komst í 6–1 á fyrstu tíu mínútunum en Færeyingar unnu sig aftur inn í leikinn og jöfnuðu í 6–6. Íslenska liðið náði forystunni á ný og leiddi 12–10 í hálfleik. Færeyingar minnkuðu muninn í 15–13 í síðari hálfleik en Ísland náði fimm marka forskoti, 19–14, þegar rúmar tíu mínútur voru eftir og hélt forystunni til leiksloka.

HSF
Sara Sveinsdóttir

Frábær vörn og góð markvarsla skóp sigurinn hjá stelpunum en færeyska liðið skoraði sitt fyrsta mark í seinni hálfleik eftir tæpar tíu mínútur.

Ísland mætir Ísrael í lokaleik sínum í riðlinum á morgun með EM-sætið í höfn. Ísrael er án stiga eftir tap gegn Tyrklandi í dag. Evrópumótið fer fram í Svartfjallalandi næsta sumar.

Mörk Íslands

Sara Sveinsdóttir 10
Helga Jenný Vigfúsdóttir 6
Kristín Einardóttir 2
Emilía Guðný Magnúsdóttir 1
Hjördís Gauja Kjartansdóttir 1
Anja Gyða Vilhelmsen 1

Varin skot

Freydís Ragna Kristjánsdóttir 12

Íslenska liðið var vel stutt af fjölmörgum íslenskum áhorfendum sem mættir eru til Færeyja eins og sjá má á myndinni hér að neðan.

Rakel Dögg Bragadóttir er þjálfari liðsins.

HSF

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top