
Dagur Árni Heimisson, fyrirliði íslenska U19 ára landsliðs karla, var valinn mikilvægasti leikmaður mótsins (MVP) á Opna Evrópumótinu í handbolta sem lauk á föstudaginn. Íslenska landsliðið tapaði úrslitaleiknum gegn sterku liði Spánar með minnsta mun, 31-30. Það er hefð á alþjóðlegum mótum að mikilvægasti leikmaður mótsins sé ekki valinn í úrvalslið mótsins. Það var engin undantekning gerð að þessu sinni. Dagur Árni var því ekki í liði mótsins en Ísland átti tvo fulltrúa í liði mótsins. Það voru þeir Jens Sigurðarson, markvörður úr Val og Bessi Teitsson, vinstri hornamaður úr Gróttu. U19 ára landsliðið fer á HM í Egyptalandi í ágúst. Það verður spennandi að sjá liðið leika þar á stærsta sviðinu undir stjórn Heimis Ríkharðssonar þjálfara U19 ára landsliðsins. Lið mótsins: All-Star holdet ved European Open 2025: Markmaður: Jens Sigurðarson (Ísland) Vinstra horn: Bessi Teitsson (Ísland) Vinstri skytta: Josip Tomic (Króatía) Miðjumaður: Quim Rocas Perez (Spánn) Línumaður: Guido Bayo Giraudo (Spánn) Hægri skytta: Max Pedersen (Svíþjóð) Hægra horn: Jakub Kalata (Póland) Markahæstur: Kristofer Liedemann (Eistland) – 43 mörk Besti varnarmaðurinn: Oriol San Felipe Vilarrasa (Spánn) Mikilvægasti leikmaðurinn: Dagur Árni Heimisson (Ísland)

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.