Teitur hugsar sér til hreyfings – Orðaður við Lowen
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Landsliðsmaðurinn, Teitur Örn Einarsson leikmaður Gummersbach er orðaður við þýska liðið Rhein-Neckar Löwen. Það er SportBild sem greinir frá.

Rhein-Neckar Lowen leitar nú af miklum afli af örvhentri skyttu en allt bendir til þess að Ivan Martinovic verði seldur til Veszprém í sumar eins og við greindum frá fyrr í morgun.

Samkvæmt heimildum Handkastsins hefur Teitur Örn Einarsson verið opinn fyrir því að leita á önnur mið og yfirgefa Gummersbach en félagið sótti til sín hollenska landsliðsmanninn, Kay Smits frá Flensburg í sumar. Það liggur því beinast við að Rhein-Neckar Löwen íhugi að fá Teit til sín strax í sumar.

Aðrar örvhentar skyttur hafa verið orðaðar við Lowen en þeir eru þó ekki samningslausir fyrr en á næsta tímabili. Um er að ræða Danann, Jacob Lassen leikmann HSV Hamburg.

Lowen fékk til sín Danann, Edwin Aspenbäck frá danska úrvalsdeildarfélaginu Holstebro fyrr í sumar en hann var þó ekki hugsaður sem fyrsti kostur í hægri skyttu stöðuna hjá liðinu.

Machulla þjálfari Rhein-Neckar Lowen þekkir vel til Teits því hann þjálfaði hann hjá SG Flensburg-Handewitt og fékk hann til liðsins frá Kristianstad.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top