Kviðslitsaðgerð framundan

Handkastið heyrði aðeins í Aðalsteini Erni Bergþórssyni sem hefur verið partur af Þórs liðinu undanfarin ár og einungis leikið vörn.

Lék hann sjö leiki með liðinu á síðastliðnu leiktímabili og átta leiki tímabilið 2023/2024. Aðalsteinn er fæddur árið 1987 og uppalinn í Þorpinu. Þó lék hann eitt ár í 3. flokki með KA.

Aðalsteinn var spurður að því hvort hann væri búinn að vera að æfa með liðinu og hvort hann hugðist ætla að taka slaginn í vetur.

,,Ég ætlaði mér það en svo kom í ljós í júní að ég þarf að fara í kviðslitsaðgerð á báðum nárum. Klíníkin var lokuð allan júlí vegna sumarleyfa þannig að ég bíð bara eftir að fá kallið sem verður vonandi sem fyrst. Ég þarf bara að sjá hvað setur," sagði Aðalsteinn í samtali við Handkastið.

Handkastið sendir bestu batakveðjur á Aðalstein og vonar að hann geti hjálpað sínu uppeldisfélagi eitthvað í vetur.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top