Níu mörk Viggós skiluðu honum í lið umferðarinnar
{{brizy_dc_image_alt entityId=

3.umferð þýsku úrvalsdeildarinnar lauk í gær þegar að Flensburg vann 13 marka úti sigur á Minden. Áfram halda íslensku leikmennirnir að gera það gott í deildinni og er landsliðsmaðurinn Viggó Kristjánsson í liði 3.umferðar sem Daikin Handball velur.

Hér að neðan er hægt að sjá lið 3.umferðar í þýsku úrvalsdeildinni:

Benjamin Buric (Flensburg)

Flensburg unnu 13 marka úti sigur í gær og var Benjamin Buric markmaður Flensburg góður þar sem hann varði 11 bolta (47,8%)

Marcel Schiller (Göppingen)

Marcel Schiller liðsfélagi Ýmis Arnar stóð sig með prýði þegar hann skoraði 8 mörk úr átta skotum þegar liðið sigraði Erlangan.

Lasse Andersson (Füchse Berlin)

Þrátt fyrir erfitt 7 marka tap í fyrsta leik Nicolaj Krickau gatan hann ekki kvartað um frammistöðu Lasse Andersson. Lasse skoraði 9 mörk og lagði upp 2 mörk.

Marko Grgic (Flensburg)

Marko Grgic átti góðan leik í gær þegar að lið hans Flensburg unnuð góðan 13 marka sigur á Minden. Marko skoraði 8 mörk og lagði upp 2 mörk.

Viggó Kristjánsson (Erlangen)

Viggó Kristjánsson var frábær þegar að lið hans Erlangen tapaði með eins marks mun gegn Göppingen. Viggó skoraði 9 mörk og lagði upp 7 mörk.

Jarnes Faust (Lemgo)

Jarnes Faust skoraði 6 mörk þegar að lið Lemgo sigruðu lærisveina Guðjóns Vals í Gummersbach með 6 mörkum 31-25.

Aron Seesing (Bergischer)

Lærisveinn Arnórs Þórs Aron Seesing átti góðan leik í 7 marka tapi gegn Stuttgart. Aron skoraði 5 mörk og lagði upp 3 mörk.

4.umferð þýsku bundesligunnar hefst á fimmtudaginn þegar að Göppingen býður Leipzig í heimsókn

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top