Leó var flottur í kvöld (Sævar Jónasson)
HK vann sigur úr býtum gegn ÍR í kvöld með naumindum, 30-28. Fyrir leik voru þetta tvö neðstu lið deildarinnar en HK voru með tvö stig á meðan ÍR voru með eitt stig, alvöru fjögurra stiga fallslagur af bestu gerð. HK voru öflugri í byrjun og sérstaklega varnarlega en þeim gekk nokkuð vel að halda aftur af ÍR-ingum sem eru vanir að skora mikið. Staðan í hálfleik var 12-9 fyrir heimamenn. ÍR-ingar voru þó fljótir að jafna í byrjun síðari hálfleiks og eftir það skiptust liðin reglulega á því að leiða en þegar rétt rúmar tíu mínútur voru eftir náðu HK fimm marka forystu og það var of mikið bil fyrir ÍR að ná niður og á endanum náðu heimamenn að vinna leikinn með tveimur mörkum, 30-28. Róbert Örn Karlsson átti frábæran leik í marki HK en hann varði 45,9% skotanna sem hann fékk á sig í kvöld en annars var Leó Snær Pétursson markahæstur með sjö mörk úr þrettán skotum. Hjá ÍR var Ólafur Rafn Gíslason einnig flottur í markinu en hann varði 40% af skotunum sem hann fékk á sig en besti útispilarinn í ÍR liðinu var hinn ungi og feykilega efnilegi Jökull Blöndal Björnsson en hann skoraði tíu mörk úr fjórtan skotum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.