Breki Hrafn Árnason - Arnór Máni Daðason (Kristinn Steinn Traustason)
Íslands- og bikarmeistarar Fram eru í miklum vandræðum í upphafi tímabils en liðið er með fjögur stig að loknum sex umferðum og sitja í 9. - 11.sæti Olís-deildarinnar. Markvarslan hjá liðinu hefur ekki verið til útflutnings. Arnór Breki Daðason og Breki Hrafn Árnason eru með ellefu varða bolta að meðatali í leik í þessum fyrstu sex leikjum tímabilsins. Arnór Máni er með 27% markvörslu og Breki Hrafn 0,2% betur. Rætt var um gengi Fram í upphafi tímabils í nýjasta þætti Handkastsins þar sem Stymmi klippari lét þung orð falla í garð markvarðapars Fram sem áttu stóran þátt í góðu gengi liðsins á síðustu leiktíð. ,,Markverðirnir hjá Fram eru ekki að verja blautann. Ef ég myndi leggjast yfir þetta og telja varin skot í fyrri hálfleik í allan vetur þá veit ég ekki hvort ég myndi ná tveggja stafa tölu samtals,” sagði Stymmi klippari og hélt áfram. ,,Þeir vörðu 2-3 bolta í fyrri hálfleik gegn KA og fengu á sig 19 mörk. Þeir tapa öllum leikjum í fyrri hálfleik. Þeir mæta með hausinn upp í rassgatinu á sér. Léleg vörn? Örugglega en þú átt samt að geta fengið 2-3 bolta í þig óvart,” sagði Stymmi klippari sem var á sínum tíma frambærilegur markvörður í efstu deild á Íslandi og ætti að vita hvað hann er að segja í þetta skiptið. Fram mætir Porto í 1.umferð Evrópudeildarinnar í kvöld í Úlfarsárdalnum klukkan 18:45. Handkastið hvetur handboltaáhugafólk að fjölmenna í Úlfarsárdalinn og hvetja íslenskan handbolta áfram í Evrópu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.