Vantar leiðtoga í Stjörnuna
Sævar Jónasson)

Jón Ásgeir Eyjólfsson (Sævar Jónasson)

Stjarnan tók á móti Aftureldingu síðasta föstudag í Garðabænum og unnu 31-35 sigur og komust með sigrinum aftur á topp Olís deildarinnar.

Stjörnumenn gerðu nokkrar tilraunir til að komast yfir í leiknum og ná undirtökunum en það hafðist ekki.

Ásgeir Gunnarsson ræddi gengi Stjörnumanna í síðasta þætti Handkastsins og fannst vera viðvörunarbjöllur í Garðabænum. ,,Ég veit ekki hvort maður eigi að segja það en þetta er solid flatt sko. Allt í kringum liðið það var enginn að lýsa í byrjun og svo var dósahljóð þegar einhver loksins mætti og þetta smitast allt heim í stofu."

Ásgeir sýnir því skilning að margir séu frá í Garðabænum vegna meiðsla en liðið geti engu að síðust stillt upp góðu liði þó það vanti kannski örlítið upp á róteringuna í liðinu.

Davíð Már Kristinsson tók þá til máls og veltir því upp hver sé hreinlega leiðtoginn í liðinu þegar Tandri Már Konráðsson er meiddur. ,,Það koma móment í leiknum þar sem Stjörnumenn eru seinir að skila sér í vörn og fá mark í bakið og það vantar eitthvað upp á hjá þeim."

Styrmir spyr þá hvort þeir séu með leiðtoga fyrir Stjörnumenn sem þeir sjá fyrir sér að geta vaxið í það hlutverk. ,,Þeir eru að reyna að rækta Jón Ásgeir Eyjólfsson en hann er náttúrulega bara á öðru ári í þessari deild og það tekur tíma að vaxa í þetta hlutverk" sagði Davíð Már og tók Ásgeir undir þessi orð hans.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top