Forsala miða að hefjast á Akureyrarslaginn – Færri munu komast að en vilja
Skapti Hallgrímsson

KA og Þór munu mætast fimmtudagskvöldið 20. nóvember kl. 19:30 í KA heimilinu í Olís deild karla. Gríðarleg eftirvænting er fyrir leiknum norðan heiða og skiljanlega er gríðarleg eftirspurn fyrir miðum á leikinn. Ljóst er að miðarnir munu rjúka út eins og heitar lummur og færri munu komast að en vilja.

Handkastið hefur eftir heimildum að nú þegar eru allar línur farnar að rauðglóa hjá KA og Þór þar sem spurt er út í hvernig miðasölu verði háttað. Skal engan undra enda þetta einn af leikjum ársins og stórviðburður í Akureyrarbæ.

Handkastið hafði samband norður í land og fékk eftirfarandi svör úr KA heimilinu.

"Forsala miða fyrir KA stuðningsmenn hefst í KA heimilinu á morgun (miðvikudag) og stendur frá 15:45-18:00. Miðaverðið í forsölu verður 3500 krónur fyrir fullorðna. 3-16 ára borga 500 krónur. Þórsarar munu sjá um miðasölu sinna stuðningsmanna. Takmarkað magn miða verður í boði svo fólk verður að hafa hraðar hendur. Það verða engir rafrænir miðar (Stubbur) og einungis selt í KA heimilinu og hjá Þór"

Ljóst er að taugarnar verða þandar til hins ítrasta fimmtudagskvöldið 20. nóvember í KA heimilinu og spurning hvort montrétturinn á Akureyri lendi KA megin eða Þórs megin eftir leik.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top