bolti (Sævar Jónasson)
Eftir eldræðu Aðalsteins Eyjólfssonar þjálfara karlalið Víkings í Handkastinu á dögunum um stöðu kvenna handboltans á Íslandi sem hann sagði að væri í sögulegu lágmarki tók Boltabloggið sér til á Facebook og ritaði niður áhugaverða punkta. Handkastið hefur virkilega gaman af skrifum Boltabloggsins á Facebook en Boltabloggið hefur verið afar virkt undanfarna daga og vikur og er Handkastið virkilega hrifð af því. Boltabloggið tók saman það sem það hefur séð breytast á 27 árum í íslenskum (kvenna)handbolta, eins og hann orðaði það. Hann skipti því niður í fjóra parta. Hér eru skrif Boltabloggsins um það sem hann hefur séð breytast á tæplega þrjátíu árum. Vegna skorts á leikmönnum, hægri, lítilli, engri nýliðun, haga leikmenn sér í nánast eins og þeir vilja. Hópurinn og félagið er númer 2 ÉG er í fyrirrúmi. 2. Fólk var í íþróttum til að ná árangri sem hópur fyrir félagið sitt. Þrátt fyrir að ekkert væri borgað nema kostnaður þá æfðu stelpur mjög vel um síðustu aldamót. Tímabilið 1998 - 2012 var blómaskeið og endurspeglaðist í þokkalegum árangri landsliðsins. Núna er ansi margir í þessu fyrir sig. Hvað fæ ég í laun og hversu stórt hlutverk fæ ég í leik liðsins. Ég um mig frá mér til mín í staðinn fyrir VIÐ. Fyrir vikið er áhugi nærsamfélagsins minni en áður og fólk mætir bara á leiki þegar vel gengur og varla það. 3. Foreldravæðing handboltans Að komast á æfingu í gamla daga var að fara inn í annan heim. Þarna var maður í friði að stunda áhugamál sitt með góðum félögum. Tækifæri til að þroskast, læra að vinna saman, verða fyrir vonbrigðum, ná árangri og eflast sem einstaklingur. Í dag eru íþróttahúsin " troðfull" af foreldrum sem keyra á æfingar, horfa á æfingar og sundurgreina hvað fór fram og hvernig væri nú hægt að gera hlutina betur fyrir... Foreldrar taka að sér að stjórna ekki fyrir klúbbinn heldur fyrir barnið sitt. Sumir þjálfa á sömu forsendum. Kannski hefur þetta alltaf verið svona en ég held samt ekki. 4. Gagnrýnin umfjöllun Fyrir utan strákana sem reka Handkastið og eru að reyna að vera hvassir á köflum, hefur ekki verið neitt til sem heitir gagnrýnin umfjöllun um handbolta lengi. Allt er svo voða flott gott og fínt þótt augað og tölfræðin segi allt annað. Pollýanna er sest að í hreyfingunni og það er eingöngu á miðlun netsins sem eitthvað ber á aðhaldi. Þarna standa körfu og fótboltinn betur. Án gagnrýni verða engar framfarir.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.