Fleiri horfðu á handboltann en NFL
Andreas Gora /AFP

Bob Hanning, framkvæmdastjóri Füchse Berlin, og Silvio Heinevetter, fyrrverandi landsliðsmarkvörður Þýskalands, telja að handboltinn geti lært mikið af umgjörð NFL-deildarinnar í amerískum fótbolta. Þeir voru meðal áhorfenda þegar Detroit Lions og New England Patriots mættust á Allianz Arena í München um helgina.

Þetta var í sjötta sinn sem NFL-leikur fór fram á þýskri grundu og mættu 70.225 áhorfendur á völlinn.

Silvio Heinevetter var sérstaklega hrifinn af þeirri stemningu sem skapaðist í kringum leikinn og telur að handboltinn þurfi að horfa meira til þess hvernig NFL vinnur með stuðningsmönnum sínum.

„Þetta er á allt öðru stigi. Stuðningsmannahátíðir fyrir leikinn, þetta er eitthvað sérstakt. Handboltinn ætti líka að gera þetta,“ sagði Heinevetter í samtali við football-world.news.

Bob Hanning vakti athygli á áhugaverðum samanburði á sjónvarpsáhorfi í færslu á LinkedIn.

Stórleikur Füchse Berlin, sem sýndur var á þýsku sjónvarpsstöðinni ARD síðdegis á laugardag, dró að jafnaði eina milljón áhorfenda.

NFL-leikurinn í München, sem sýndur var á RTL á sunnudag, fékk hins vegar um 700 þúsund sjónvarpsáhorfendur.

Hanning segir þessar tölur sýna að handboltinn standi vel þegar kemur að sjálfri íþróttinni og áhuga á stórleikjum.

„Frá íþróttalegu sjónarmiði gerum við stórleikjunum okkar mjög góð skil,“ sagði Hanning.

Hann viðurkennir þó að miðað við alla athyglina sem NFL-leikurinn fékk fyrir fram hafi hann búist við öðrum niðurstöðum.

„Miðað við það sem ég heyrði, las og sá á samfélagsmiðlum í síðustu viku hefði ég búist við því að tölurnar væru að minnsta kosti öfugar.“

Hanning telur að handboltinn eigi mikið inni þegar kemur að markaðssetningu og þeirri upplifun sem boðið er upp á í kringum stórleiki.

Hann segir að félögin þurfi að leggja meiri áherslu á það sem gerist utan vallar og skapa viðburði sem fólk vill ræða og deila á samfélagsmiðlum.

„Nú þurfum við að gera meira í kringum leikina og einbeita okkur að því sem fólk talar um og deilir á samfélagsmiðlum.“

Hanning segir að handboltinn geti ekki haldið áfram að kvarta yfir skorti á athygli ef félögin nýta ekki betur þau tækifæri sem eru til staðar.

„Ef við höldum áfram að gera það sem við höfum verið að gera í kringum stórleikina okkar getum við hætt að kvarta yfir því að fá ekki næga athygli.“

Hann tekur jafnframt fram að þessi gagnrýni eigi einnig við um hans eigið félag, Füchse Berlin.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top