Þorsteinn Leó markahæstur í sigri Porto og önnur úrslit kvöldsins í Evrópudeildinni
Kristinn Steinn Traustason)

16 leikir fóru fram í þriðju umferð Evrópudeildarinnar í kvöld og að vanda voru margir Íslendingar í eldlínunni.

HC Kriens (SUI) - Fram (ISL) 40-25
Framarar fengu skell í Sviss í kvöld. Kjartan Þór Júlíusson var markahæstur Frama með 7 mörk.

Elverum (NOR) - FC Porto (POR) 25-29
Þorsteinn Leó Gunnarsson var markahæstur með 9 mörk en Tryggvi Þórisson skoraði ekki fyrir Elverum.

CS Minaur Baia Mare (ROU) - Skanderborg (DEN) 27-45
Kristján Örn Kristjánsson (Donni) og félagar í Skanderborg unnu stórsigur á Baia Mare sem slógu Stjörnuna út í forkeppninni. Donni skoraði 10 mörk í kvöld.

HF Karlskrona (SWE) - Benfica (POR) 32-34
Stiven Tobar Valencia og félagar í Benfica unnu nauman sigur í Svíþjóð í kvöld. Stiven skoraði 1 mark.

Melsungen (GER) - FTC (HUN) 33-27
Arnar Freyr og Reynir Þór og félagar í Melsungen unnu 5 marka sigur á ungverska liðinu FTC í kvöld. Arnar Freyr var markahæstur í liði Melsungen með 6 mörk en Reynir Þór en enn frá vegna meiðsla.

Hannover Burgdorf (GER) - IK Savehof (SWE) 27-25
Lærisveinar Heiðmars Felixsonar tóku á móti Birgi Steini og félögum í Savehof og unnu tveggja marka sigur. Birgir Steinn skoraði 2 mörk.

RK Nexe (CRO) - Kadetten Schaffhausen (SUI) 29-30
Óðinn Þór Ríkharðsson og félagar í Kadetten Schaffhausen unnu sterkan sigur á útivelli í kvöld. Óðinn Þór skoraði 4 mörk.

Kristianstad (SWE) - HC Vardar 32-31
Einar Bragi Aðalsteinsson og félagar unnu góðan sigur á stórliði Vardar. Einar Bragi skoraði 2 mörk.

Önnur úrslit:
Ostrow Wielkopolski - Montpellier 25-38
Grosist Slovan - Granollers 29-34
MRK Sesvete - Toulouse 32-31
Tartan Presov - Fredericia 27-34
RK Partizan - Ademar Leon 25-18
Potaissa Turda - Flensburg 26-33
Saint Raphael - Bidasoa Irun 35-32
BSV Bern - Kiel 27-35

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top