Viktor Sigurðsson (Baldur Þorgilsson)
Það vakti athygli þegar Einar Jónsson þjálfari Fram tilkynnti Handkastinu í síðustu viku að nýjasti leikmaður Fram sem félagið keypti af Val í síðasta mánuði, Viktor Sigurðsson mætti ekki spila gegn sínu gamla félagi í 9.umferð Olís-deildarinnar í síðustu viku. Handboltahöllin fjallaði um þetta mál í þætti sínum á mánudagskvöldið þar sem Hörður Magnússon var með Ásbjörn Friðriksson og Rakel Dögg Bragadóttir hjá sér í settinu. Þar velti Hörður Magnússon því fyrir sér hvort þetta væri löglegt en siðlaust. ,,Mér finnst þetta í grunninn eiga að vera bannað. Ef leikmaður er keyptur og hann er orðinn löglegur með öðru liði og þá hann að geta spilað gegn öllum liðum deildarinnar. Ég veit ekki hvað öðrum almennt finnst," sagði Ásbjörn og hélt áfram. ,,Ég skil Valarana líka að banna honum að spila, það veikir Fram liðið en það er leiðinlegt fyrir alla sem fylgjast með deildinni að Viktor fái ekki að spila þennan leik. Sögulína leiksins hefði verið að Viktor væri að mæta gömlu félögunum." Hörður Magnússon tók viðtal við bæði Einar Jónsson og Ágúst Jóhannsson fyrir leik Fram og Vals sem Valur vann sannfærandi og spurði þá út í þetta mál. Þar sagði Ágúst Jóhannsson þjálfari Vals að Valur hefði þess vegna getað bannað Viktori að spila alla leiki gegn Val á tímabilinu. Hörður minntist á þau orð og spurði Rakeli Dögg út í þau ummæli Ágústar. ,,Mér finnst það reyndar mjög furðulegt ef þeir ætluðu að fara fram á það. Ef það fara fram kaup á leikmanni þá er það allt annað en þegar lánssamningar eru á milli félaganna. Það finnst mér allt annað mál.” Umræðuna um þetta mjög svo athyglisverðamál má sjá hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.