Aron Pálmarsson aðstoðaði FH-inga með sóknarleikinn
J.Long)

FH sigraði KA í gær með þrettán marka mun 45-32 í fyrsta leik 10.umferðar í Olís-deild karla þar sem skytturnar Garðar Ingi Sindrason og Ómar Darri Sigurgeirsson fóru á kostum. Garðar skoraði 13 mörk úr sínum 13 skotum. Ómar bætti við öðrum 8 mörkum úr 11 skotum.

FH-ingar voru ósáttir við sóknarleikinn á móti Aftureldingu í síðustu umferð og töluðu um það í viðtölum. Afturelding vann þann leik 25-23 eftir að FH hafi verið yfir í hálfleik.

Sigursteinn Arndal sagði í viðtali við Vísi í gær að það hafa margar góðar hendur í Krikanum komið að verki í þeim málum og hann sagðist vera mjög ánægður með það.

Samkvæmt heimildum Handkastsins er þar meðal annars verið að tala um Aron Pálmarsson sem var inn á æfingum FH-inga í vikunni í skóm og gallanum tilbúinn að aðstoða og leiðbeina leikmönnum FH.

Það hefur greinilega skilað sér því leikmenn FH léku við hvern sinn fingur sóknarlega og voru KA-menn í stökustu vandræðum varnarlega nær allan leikinn.

Aron var í sumar ráðinn inn sem sérlegur faglegur ráðgjafi við handknattleiksdeild FH.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top