Frítt inn þegar tvö af köldustu liðum deildarinnar mætast
Sævar Jónasson)

Einn áhugaverðasti leikur umferðarinnar í Olís-deild karla fer fram í Kórnum í kvöld þegar HK og Stjarnan mætast klukkan 19:30. Tveimur stigum munar á liðunum en HK er í 10.sæti deildarinnar með 8 stig á meðan Stjarnan er með 10 stig í 8.sæti deildarinnar.

Á milli þeirra er síðan Selfoss með níu stig en þeir mæta Fram sem er í 7.sæti deildarinnar annað kvöld.

HK-ingar ætla greinilega að gera allt sem þeir geta til að fá sem mestan stuðning úr stúkunni því frítt verður á leikinn í boði Húsasmiðjunnar en HK tilkynnti þetta á samfélagsmiðlum sínum fyrr í vikunni.

,,Við málum stúkuna eldrauða fyrir strákana okkar og hvetjum þá alla leið. Koma svo,” segir í færslu HK Handbolta á samfélagsmiðlum.

Fyrri leikur liðanna í Garðabænum endaði með eins marks sigri Stjörnunnar í hörkuleik. Ef litið er til síðustu fimm leikja allra liða í Olís-deildinni þá er HK og Stjarnan ein af köldustu liðum deildarinnar um þessar mundir. Einungis Þór hefur fengið færri stig í síðustu fimm leikjum. Þórsarar hafa fengið eitt stig í síðustu fimm leikjum, HK tvö og Stjarnan þrjú stig.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top