Hannes Höskuldsson (Egill Bjarni Friðjónsson)
14.umferðin í Olís-deild karla hefst í kvöld með fjórum leikjum og lýkur annað kvöld með tveimur leikjum. Umferðin hefst í Vestmannaeyjum þegar ÍBV og FH mætast klukkan 18:00. Valur tekur á móti Þór klukkan 18:30. ÍR og Haukar mætast klukkan 19:00 og í Kórnum fer fram athyglisverður leikur þegar HK og Stjarnan mætast en einungis tveimur stigum munar á liðunum. Fram og Selfoss mætast í Úlfarsárdalnum klukkan 18:30 annað kvöld en Selfyssingar eru þremur stigum á eftir Fram. KA og Afturelding mætast klukkan 19:00. Markahæstu leikmenn Olís-deildar karla eftir 13 umferðir:

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.