
Simon Pytlick (Michael Hundt / dpa Picture-Alliance via AFP)
Simon Pytlick verðandi leikmaður Fuchse Berlín var stórkostlegur gegn félaginu er lið hans, Flensburg vann leik liðanna í gærkvöldi í þýsku úrvalsdeildinni 40-39 en Flensburg var 40-37 yfir en Berlínar-liðið skoraði tvö síðustu mörk leiksins. Simon Pytlick sem var á dögunum kynntur sem nýr leikmaður Fuchse Berlín frá og með sumrinu 2027 gerði sér lítið fyrir og skoraði ellefu mörk í leiknum og var langmarkahæsti leikmaður leiksins. Vinstri hornamaðurinn í liði Flensburg, Emil Jakobsen kom næstur með átta mörk. ,,Við verðum að sætta okkur við það að svona endaði þetta. Einstaklingshæfileikar Simon Pytlick, Marko Grgić og Lasse Møller voru of miklir fyrir okkur í dag,“ sagði Krickau á vefsíðu félagsins. ,,Við náðum aldrei almennilega samvinnu milli varnar og markvarða. Við náðum engri stjórn þar og þegar við loksins gerðum það voru Flensburg þolinmóðir og biðu eftir sínum færum.” Fuchse Berlín eru núna sjö stigum á eftir Magdeburg sem eiga leik til góða á Berlínarliðið sem eru ríkjandi Þýskalandsmeistarar. Flensburg fór upp í 2.sæti deildarinnar með sigrinum og er fjórum stigum á eftir Magdeburg sem trónir á toppi deildarinnar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.