Fram unnu án Viktors og Rúnars Kára – Tæpir fyrir bikarleikinn
Egill Bjarni Friðjónsson)

Íslands- og bikarmeistarar Fram fara í jólafrí í Olís-deild karla á fljúgandi siglingu en liðið hefur unnið þrjá leiki í röð í deildinni nú síðasta topplið Hauka á Ásvöllum í gærkvöldi 25-27.

Það sem gerir sigur Fram athyglisverðan er að liðið var án Rúnars Kárasonar og Viktors Sigurðssonar í leiknum og þar að auki fékk Erlendur Guðmundsson rautt spjald um miðjan seinni hálfleikinn. Haukar voru þremur mörkum yfir 23-20 en þá sneru Framarar taflinu sér í vil og unnu lokamínútur leiksins 7-2.

Einar Jónsson þjálfari Fram sagði í samtali við Handkastið að Viktor Sigurðsson væri að glíma við meiðsli á ökkla og því hafi hann ekki verið leikfær í leiknum í gær. Rúnar Kárason hefur verið að glíma við eymsli í kálfa um tíma og hefur verið í litlu hlutverki hjá Fram að undanförnu.

Framarar fara norður á Akureyri á föstudagskvöldið og mæta þar KA í 8-liða úrslitum Powerade-bikarsins. Gera má ráð fyrir því að bæði Viktor og Rúnar geti leikið í þeim leik en Einar sagði að meiðsli Viktors væru ekki alvarleg.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top