Mögulegir mótherjar Íslands á EM endurheimta tvo lykilmenn
Andreas Gora / dpa Picture-Alliance via AFP

Þrátt fyrir að hafa verið í keppnisbanni til 10. desember mun Nikola Portner markvörður Magdeburg mæta til leiks með Sviss á Evrópumótið í janúar á næsta ári.

Andy Schmid tilkynnti 19 manna hóp sinn fyrir EM í síðustu viku en Andy Schmid er á leið á sitt annað stórmót sem þjálfari Sviss en hann tók við liðinu sumarið 2024. Sviss er í D-riðli með Svartfellingum, Slóveníu og Færeyjum en tvö efstu liðin í D-riðli gætu mætt Íslandi í milliriðli komist Ísland upp úr sínum riðli.

Þá er athyglisvert að vinstri skytta Magdeburg, Manuel Zehnder er einnig í hópnum þrátt fyrir að hafa ekkert leikið á tímabilinu en hann varð fyrir alvarlegum hné meiðslum í aðdraganda heimsmeistaramótsins í janúar er hann sleit krossband á vinstra hné.

Hann virðist þó vera að jafna sig og hefur Andy Schmid valið hann í 19 manna hópinn sem má sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top