Engin forkeppni Evrópudeildarinnar – Ísland á tvö sæti
Kristinn Steinn Traustason)

Evrópska handknattleikssambandið, EHF tilkynnti fyrr í desember breytingar bæði á Meistaradeild Evrópu og Evrópudeildinni sjálfri. Með breytingunum fjölgar átta liðum í Meistaradeild Evrópu og á sama tíma hefur EHF ákveðið aðhætta við forkeppni Evrópudeildarinnar.

Þá flytjast tvö neðstu liðin í fjögurra liða riðlum Meistaradeildinnar yfir í Evrópudeildina á öðru stigi keppninnar. Ísland á ennþá tvö sæti í Evrópudeildinni en tvö íslensk lið hafa tekið þátt í Evrópudeildinni síðustu tvær leiktíðir.

Í fyrra komust bæði FH og Valur í riðlakeppni Evrópudeildarinnar en Valur komst í riðlakeppnina í gegnum forkeppnina. Í ár lék Fram í riðlakeppni Evrópudeildarinnar en Stjarnan tapaði í forkeppninnni gegn rúmenska liðinu Baia Mare í vítakastkeppni.

32 lið taka þátt í Evrópudeildinni sem leikin verður í átta fjögurra liða riðlum. Tvö efstu lið riðlanna fara áfram í 28-liða útsláttarkeppni en sextán félög komast áfram úr hverjum riðli í útsláttarkeppni en þangað koma líka liðin tólf sem enduðu í 3. eða 4. sæti í fyrri riðlakeppni Meistaradeildarinnar.

Alls hefja því 28 lið leik í útsláttarkeppninni, þar sem leikið verður heima og að heiman. Úr þeirri umferðast komast 14 sigurlið áfram í 16-liða úrslit. Við þau bætast svo tvö lið sem enda í 5. sæti í seinni riðlakeppni Meistaradeildarinnar.

Flókið? Nei nei það þarf ekki að vera.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top