
Evrópumeistaramótið í handbolta hefst 15.janúar næstkomandi þar sem Frakkland á titil að verja eftir sigur á Dönum í framlengdum úrslitaleik 33-31 sem fram fór í Þýskalandi árið 2024. Veðbankinn Coolbet býður upp á ýmsa skemmtilega markaði til þess að veðja á Evrópumótið. Einn þeirra er hvaða lið er líklegast til að lyfta þeim stór í lok mótsins. Danir eru taldir líklegastir á stuðlinum 1.38 sem verður að teljast ansi lágt í aðdraganda mótsins. Svíar sem eru að halda mótið ásamt Norðmönnum og Dönum eru taldir næst líklegastir á stuðlinum 8 en Ísland mun einmitt mæta Svíum í milliriðli ef allt gengur eftir. Ríkjandi meistarar í Frakklandi eru taldir þriðju líklegastir til að vinna mótið og er hægt að tífalda upphæðina með að veðja á Frakkana. Strákarnir okkar í Íslandi eru taldir fimmtu líkelgastir til að vinna mótið á stuðlinum 20. Það verður spennandi að sjá hvort Coolbet reyndist sannspáir og Danir lyfti þeim stóra í janúar en það eru orðin 12 ár síðan Danir urðu Evrópumeistarar síðast.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.