Verður þetta síðasta stórmót Björgvins Páls?
INA FASSBENDER / AFP)

Björgvin Páll Gústavsson markvörður Vals og íslenska landsliðsins er á leið á sitt 19. stórmót með íslenska landsliðinu í janúar er Ísland leikur á Evrópumótinu sem fram fer í Noregi, Danmörku og Svíþjóð. Mikil spenna er farin að myndast fyrir mótinu sem hefst eftir 15 daga.

Björgvin Páll sem verður 41 árs í maí á næsta ári segist engu nær um það hvort þetta verði hans síðasta stórmót á ferlinum. Íslenska landsliðið kemur saman til æfinga á morgun, 2.janúar.

,,Það er erfitt að segja ég hef gengið út frá því að síðustu tíu stórmót að það sé mitt síðasta stórmót. Ég gerði það meiri segja á fyrsta stórmótinu, maður veit aldrei. Ég fer inn í þetta mót eins og öll önnur mót og hugsa um að njóta þess, hvort sem það er mitt fyrsta eða síðasta," sagði Björgvin Páll í viðtali við Handkastið í höfuðstöðvum Arion Banka í síðustu viku eftir að Snorri Steinn hafi tilkynnt lokahóp Íslands fyrir Evrópumótið.

En hefur þetta verið eitthvað rætt heimafyrir?

,,Við ræðum þetta á hverju ári og ég fæ alltaf leyfi frá konunni til að fara. Meðan skrokkurinn og ástríðan er til staðar þá er þetta ennþá on. Ég lýg engu með það að þegar ég mæti á æfingar hjá Val þá er ég peppaður og hef mikla ástríðu. Landsliðið er ákveðin gulrót sem heldur manni gangandi þegar það er ekki liðsæfing eða þegar maður er að æfa sjálfur, það veitir mér orku," sagði Björgvin Páll meðal annars í viðtalinu sem hægt er að sjá í heild sinni hér að neðan.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top