Kvennalið Vals valið lið ársins
Baldur Þorgilsson)

Það var tilkynnt rétt í þessu að kvennalið Vals í handbolta hafi verið valið lið ársins af íþróttafréttamönnum.

Kvennalið Vals varð í fyrra fyrsta kvennalið á Íslandi til þess að verða Evrópumeistari þegar þær urðu Evrópubikarmeistarar eftir sigur á BM Porriño, 54-53 samtals í tveim leikjum.

Einnig urðu Valskonur Íslandsmeistarar eftir sigur á Haukum ásamt því að landa deildarmeistaratitlinum.

Karlalið Fram í handbolta var einnig tilnefnt í kvöld ásamt kvennaliði Breiðabliks í fótbolta.

Handkastið óskar Valskonum hjartanlega til hamingju með enn einn titilinn.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top