Lykilmaður Noregs glímir við meiðsli
Jürgen Fromme / AFP)

Hægri skyttan, Harald Reinkind leikmaður norska landsliðsins og Kiel í þýsku úrvalsdeildinni er að glíma við meiðsli og ríkir óvissa um þátttöku hans á Evrópumótinu sem framundan er.

Í hans stað hefur Jonas Wille kallað inn hægri skyttuna í liði HØJ Elite í dönsku úrvalsdeildinni, Simen Schønningsen. Hann verður með norska landsliðinu í Golden league sem fram fer í Hollandi í aðdraganda mótsins.

Norðmenn hafa ekki útilokað að Harald Reinkind verði með á Evrópumótinu en ljóst er að hann verður ekki með í æfingamótinu.

Noregur mætir Danmörku í Golden league á fimmtudaginn og leikur síðan geg Hollandi 10. janúar. Noregur er í C-riðli Evrópumótsins ásamt Frökkum, Úkraínu og Tékklandi.

Miklar breytingar eru á liði Noregs fyrir Evrópumótið sem eru án reynslu mikla leikmanna. En leikmenn á borð við, Christian O'Sullivan, Magnus Gullerud, Magnus Röd, Sebastian Barthold og Petter Øverby eru ekki í lokahópi Noregs fyrir Evrópumótið sem hefst 15. janúar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top