Nokkrir velvaldir aðilar voru fengnir til að spá í spilin fyrir leik Íslands og Póllands sem fram fer í Kristianstad í dag klukkan 17:00. Um er að ræða annan leik þjóðanna í riðlakeppni Evrópumótsins. Ísland vann sannfærandi sigur á Ítölum í fyrsta leik á meðan Pólverjar töpuðu gegn Ungverjum. Andri Snær Stefánsson þjálfari KA
Okkar menn eru tilbúnir í verkefnið og munu vinna flottan sigur. Óðinn verður ferskur og skorar 8 mörk. Arnór Atla fær gult spjald á bekkinn en við munum vera með frumkvæðið og skorum mikið úr seinna tempóinu enda erum við með fljótara lið en Pólverjar.
Andri Berg Haraldsson þúsundþjalasmiður
33-25 fyrir Ísland. Gísli Þorgeir heldur uppteknum hætti frá síðasta leik og verður markahæstur ásamt Óðni Ríkharðssyni.
Guðmundur Rúnar Guðmundsson þjálfari Fjölnis
Við vinnum þægilegan sigur 38-25. Elliði verður markahæstur og svarar fyrir sig eftir slakan síðasta leik.
Andri Sigfússon yfirþjálfari Gróttu
32-25 fyrir Íslandi. Orri markahæstur með 7 mörk. Við látum kné fylgja kviði og verðum aftur sannfærandi, núna gegn Pólverjum. Ómar og Viktor Gísli verða frábær í leiknum.
Ingvar Örn Ákason lýsandi á Sjónvarpi Símans
Ísland vinnur Pólland 34-28. Ómar Ingi markahæstur með 8 mörk (4 úr vítum) plús 4-6 stoðsendingar. Við setjum tóninn strax í byrjun gegn liði sem manni finnst eins og við höfum alltaf verið í basli með. Þessi ára sem leikmenn tala sjálfir um nær góðri hæð gegn Póllandi og við búum til gott hæp fyrir úrslitaleikinn gegn Ungverjum um hvort við getum farið alla leið í mótinu.
Sigurgeir Jónsson aðstoðarþjálfari mfl kvk Vals
36-26 fyrir Íslandi. Ómar Ingi markahæstur með 9 mörk.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.