HSÍ leitar eftir reyndum og öflugum bókara
Johan NILSSON /AFP

,,HSÍ leitar eftir reyndum og öflugum bókara í 50-75% starf í okkar frábæra starfsmannateymi. Möguleiki er á 100% starfshlutfalli með öðrum verkefnum sem falla ekki undir störf bókara," segir í nýrri frétt á vef handknattleikssambands Íslands nú rétt í þessu.

,,HSÍ er skemmtilegur og fjölbreyttur vinnustaður sem leggur áherslu á samstarf, bæði innan sem utan hreyfingar," segir ennfremur í fréttinni á vef HSÍ.

Þar segir ennfremur að umsóknarfrestur er til og með 1.febrúar.

Í auglýsingunni segir að allar spurningar berist til Sólveigu Jónsdóttur sem tók við sem framkvæmdastjóri HSÍ fyrir helgi og mætti segja að þetta væri eitt af hennar fyrstu verkum í starfi hjá HSÍ, að leita af nýjum og öflugum bókara.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top