Danir í miklu veseni eftir meiðsli Jørgensen – Kölluðu inn leikmann sem er ekki klár
Bo Amstrup /AFP)

Áfram halda Danir að lenda í áföllum á Evrópumótinu en Danmörk spilar við Frakkland í fyrsta leik milliriðils í kvöld. Eftir krossbandsslit Lukas Jørgensen vildi Nikolaj Jacobsen, þjálfari Danmerkur styrkja línumannsstöðuna til öryggis, ef svo færi að barnshafandi maki Emils Bergholt færi í fæðingu.

Þjálfarateymið hafði samband við tvo línumenn sem eftir voru í stækkaða hópnum en það eru þeir Andreas Magaard leikmaður HSV Hamburg og Frederik Ladefoged leikmaður Dinamo Búkarest.

Ladefoged er frá vegna meiðsla í læri, en Magaard var kallaður inn í læknisskoðun.

Eftir frekari skoðanir hjá læknateymi landsliðsins og í samráði við HSV Hamburg hefur nú verið ákveðið að öruggasta lausnin sé að Andreas Magaard taki ekki þátt á EM og snúi aftur til félags síns.

Nikolaj Jacobsen á enn möguleika á að gera eina breytingu til viðbótar á hópnum í milliriðlinum og getur einnig bætt 20. leikmanni við hópinn ef þörf krefur.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top