Frá Stjörnunni í frönsku B-deildina
Sævar Jónasson)

Ungverski leikmaðurinn, Rea Barnabás sem lék með Stjörnunni fyrri hluta tímabils í Olís-deild karla hefur fundið sér nýtt lið en samningi hans við Stjörnuna var rift eftir lokaleik Stjörnunnar fyrir áramót.

Rea Barnabás hefur samið við franska B-deildarliðið Cherbourg sem er um miðja deild í frönsku b-deildinni.

Rea var á láni hjá Stjörnunni frá ungverska félaginu Pick Szeged en hann lék 12 leiki með Stjörnunni í Olís-deildinni fyrir áramót og skoraði í þeim leikjum 14 mörk.

Stjarnan er í 8.sæti Olís-deildarinnar með 10 stig, jafn mörg stig og HK sem situr í 9.sæti deildarinnar.

Fyrsti leikur Stjörnunnar eftir áramót verður gegn nýliðum Þórs en Olís-deild karla fer af stað á nýjan leik um leið og Evrópumótinu lýkur. 

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top