Svilar mætast á Evrópumótinu í kvöld
Beate Oma Dahle / NTB / AFP)

Það er ekki á hverjum degi sem svilar mætast á stórmóti í handbolta en það mun gerast í dag þegar Þýskaland og Noregur mætast í öðrum leik þjóðanna í milliriðli Evrópumótsins, þegar Rune Dahmke og Sander Sagosen mætast.

Rune Dahmke er eiginmaður norsku handboltastjörnunnar, Stine Oftedal Dahmke á meðan Sander Sagosen er giftur, yngri systir Stine Oftedal, Hanne  Oftedal Sagosen. Stine Oftedal verður sérfræðingur norska sjónvarpsins á leiknum.

,,Ég hef reyndar ekki þorað að spyrja hana með hverjum hún heldur með. Ég er ekki viss um að ég vilji heyra svarið,“ sagði Rune Dahmke við við þýska miðilinn, handball-world.news.

Þjóðirnar mætast klukkan 19:30 í kvöld en mikið er undir fyrir bæði lið. Þýskaland er á toppi milliriðilsins með fjögur stig en Norðmenn eru með tvö stig eftir sigur á Spánverjum í síðasta leik.

Rune Dahmke og Sander Sagosen eru einnig fyrrum liðsfélagar, en þeir léku þrjú tímabil saman með Kiel á sínum tíma. ,,Hann er frábær gaur, alveg til fyrirmyndar,” sagði Dahmke aðspurður út í Sagosen.

Sander Sagosen var spurður út í svila sinn eftir sigur Noregs gegn Spáni á fimmtudagskvöldið. ,,Ég elska að horfa á Rune og spila á móti honum.Hann er eins og bróðir minn fyrir mér,” sagði Sander Sagosen.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top