Stymmi spáir í spilin: 18. umferð Olís deild karla
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Stymmi spáir í spilin (

Stymmi Klippari mun í allan vetur spá í spilin og tippa á hvernig komandi umferð mun fara í Olís deildum karla og kvenna.

Hér að neðan má sjá hvernig hann telur að 18.umferð fari í Olís deild karla.

FH – Selfoss (Fimmtudagur 19:00) / Sigurvegari: FH

Selfoss eru komnir í 8.sætið og í bullandi baráttu um sæti í úrslitakeppninni meðan FH ætlar sér að tryggja heimavallarréttinn. FH hafa byrjað nýja árið vel og munu halda því góða formi áfram með Garðar Sindra á eldi.

ÍBV – Afturelding  (Fimmtudagur 19:30) / Sigurvegari: ÍBV

Gengi liðanna verið ólíkt í upphafi árs þar sem ÍBV hefur unnið báða sína leiki og Afturelding hefur aðeins fatast flugið eftir góða frammistöðu fyrir jól. Það mun því miður fyrir Mosfellinga ekkert breytast í þessum leik og ÍBV mun fara með sigur af hólmi með Petar í fantaformi í markinu.

ÍR – Fram (Föstudagur 18:30) / Sigurvegari: Fram

ÍR unnu sinn annan leik á tímabilinu síðasta mánudag og eru ennþá í bullandi séns um að halda sæti sínu í deildinni. ÍR vann Fram óvænt í fyrra og þeir telja sig geta endurtekið þann leik á föstudaginn. Fram mun þó fara með bæði stigin heim á föstudaginn.

HK – Þór (Föstudagur 19:00) / Sigurvegari: Þór

HK töpuðu illa gegn ÍR á mánudaginn og misstu tvo lykilmenn í meiðsli í þeim leik. Þór voru í leik gegn FH en köstuðu honum frá sér undir lokin þegar þeir fóru í 7 á 6. HK eru særðir og þetta er dauðafæri fyrir Þór að sækja stig í bænum sem ég held þeir geri óvænt.

Stjarnan – Haukar (Föstudagur 19:30) / Sigurvegari: Haukar

Stjarnan í mikilli niðursveiflu og eru allt í einu farin að horfa niður fyrir sig í töflunni. Meiðslin eru mikil í hópum og áran yfir þessu ekki góð. Haukar töpuðu gegn ÍBV á heimavelli í síðustu umferð og misstu toppsætið til Vals en þeir munu mæta gíraðir í Garðabæinn á föstudaginn og fara með öruggan sigur af hólmi.

Valur – KA (Laugardagur 15:00) / Sigurvegari: Valur

Gömu handbolta stórveldin mætast á laugardaginn. KA verið á mikilli siglingu á nýju ári meðan Valsmenn leiðréttu tapið gegn Haukum með góðum sigri á Aftureldingu í síðasta leik. Þetta verður algjör naglbítur á laugardaginn en ég held að Valur hefni fyrir tapið í fyrri umferðinni og vinni leikinn með einu marki í lokin.

17.umferð (2 réttir)
16.umferð (5 réttir)
15.umferð (5.réttir)
14.umferð (3 réttir)
13.umferð (4 réttir)
12.umferð (4 réttir)
11.umferð (4 réttir)
10.umferð (5 réttir)
9.umferð (4 réttir)
8.umferð (5 réttir)
7.umferð (3 réttir)
6.umferð (2 réttir)
5.umferð (3.réttir)
4.umferð (4.réttir)
3.umferð (5 réttir)
2.umferð (4 réttir)
1.umferð (3 réttir)

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top