Öskubuskuævintýri í Noregi
Bergsøy

Handboltaliðið frá litla sjávarplássinu Fosnavogi á eyjunni Bergsøy skrifaði um helgina einn eftirminnilegasta kafla í norskum handbolta þegar Bergsøy IL tryggði sér sæti í efstu deild, REMA 1000-ligaen, á næstu leiktíð.

Eftir æsispennandi lokaumferð í 1. deild stóð liðið uppi sem sigurvegari og þar með var ævintýrið fullkomnað. Fyrir aðeins nokkrum árum var liðið að berjast fyrir tilveru sinni í norsku C-deildinni en nú er það komið í hóp þeirra bestu í landinu. 

Bergsøy vann Kragero í lokaumferðinni 44-26 en sigur í lokaumferðinni tryggði liðinu efsta sætið í 1.deildinni en Viking TIF var stigi á eftir þeim fyrir lokaumferðina. Liðið tapaði síðast leik í desember og en liðið tapaði aðeins tveimur leikjum í deildinni í vetur. Þá féll liðið úr leik í bikarnum gegn Kolstad með eins marks tapi 25-26.

Uppgangur „skref fyrir skref"

Árangur Bergsøy er langt frá því að vera tilviljun. Uppgangurinn hefur verið hægur en stöðugur undanfarinn áratug. Frá tímabilinu 2013/14 hefur liðið unnið sig upp um deildir, komst upp í 1. deild árið 2022/23 og hefur síðan tekið stór skref á hverju ári. Á fyrsta árinu í 1.deild endaði liðið í 11. sæti, í fyrra endaði liðið í 6. sæti deildarinnar og loks í toppsætið í vetur. 

Sagan inniheldur þó líka mótlæti. Liðið var nálægt því að falla niður deild tímabilið 2023/2024 þegar liðið fór í umspil um fall. Liðið missti leikmenn og tapaði fyrstu leikjum tímabilsins stórt. En með seiglu og trú á verkefnið sneri liðið genginu við og lagði grunninn að því sem nú hefur orðið að sögulegum árangri. 

Smábær á stóra sviðinu

Bergsøy kemur frá Fosnavogi í sveitarfélaginu Herøy í Møre og Romsdal – samfélagi með aðeins 3700 íbúa. Þrátt fyrir smæðina hefur félagið byggt upp sterkt íþróttastarf og lifandi handboltamenningu.

Heimavöllurinn, REM Arena í Fosnavogi, hefur orðið vígi liðsins og lykilþáttur í árangrinum, þar sem ástríðufullir stuðningsmenn hafa skapað einstaka stemningu. 

Löng og rík saga

Bergsøy Idrettslag var stofnað árið 1944 og er með starfsemi í meðal annars fótbolta, frjálsum íþróttum og handbolta. Handboltinn á sér langa hefð innan félagsins, en aldrei áður hefur karlaliðið náð jafn langt. Því má segja að núverandi árangur sé sögulegur hápunktur í yfir 80 ára sögu félagsins.

Íslandstengingar

Það nær varla neitt handboltalið árangri í Evrópu nema vera með Íslandstengingar og Bergsøy er þar engin undantekning en tveir íslenskir þjálfarar hafa stýrt liðinu undanfarin ár. Einar Jónsson þjálfari Fram í dag var ráðinn þjálfari Bergsøy árið 2000 eftir að hafa stýrt H71 í Færeyjum.

Í kjölfarið skall á heimsfaraldur og Einar Jónsson stýrði engum leik með liðinu en enginn handbolti var leikinn í neðri deildum Noregs á þeim tíma sem Einar dvaldi í Fosnavogi. Í frétt á Vísi sagði Einar Jónsson þetta þegar fjallað var um nýtt starf hans:

,,Þeir hafa mikinn metnað að komast hærra og það býr mikið í liðinu og félaginu. Það stendur vel fjárhagslega. Markmiðið er að komast upp í 1. deildina og svo úrvalsdeildina ef allt gengur að óskum. Við lítum á þetta sem þriggja ára verkefni."

Einar Jónsson kom hinsvegar heim til Íslands sumarið 2021 og tók við Fram en við liðinu tók annar Íslendingur, Lárus Gunnarsson sem hafði þá stýrt Kríu upp í efstu deild hér á landi. Lárus stýrði liðinu í eitt ár í norsku C-deildinni en árangurinn var ekki jafn góður og félagið gerði ráð fyrir og var liðið um miðja deild. Nýr þjálfari tók við liðinu af Lárusi og fór upp með liðið í fyrstu tilraun.

Ævintýrið heldur áfram

Með sæti í efstu deild bíður Bergsøy nýr veruleiki. Þar mun liðið mæta rótgrónum stórliðum norsks handbolta og verkefnið verður krefjandi. En ef saga síðustu ára segir eitthvað, þá er það að þetta lið lætur stærð eða aðstæður ekki stöðva sig. Öskubuskuævintýrið er orðið að veruleika – og næsti kafli verður skrifaður á stærsta sviðinu.

Efstu deildarliðin blóta

Eins og fyrr segir tapaði Bergsøy gegn Íslendingaliðinu Kolstad í vetur í norska bikarnum með einu marki. Þar þurftu leikmenn Kolstad að ferðast í tæpa sjö klukkutíma til að leika gegn Bergsøy en eyjan Bergsøy er fjærst margra eyja við Noregs og þarf að keyra í gegnum nokkrar eyjur áður en komið er að leiðarenda. Håndballstudio skrifaði færslu um ævintýrið á samfélagsmiðlum X um helgina þar sem sagt er að efstu deildarliðin blóti því að Bergsøy sé komið í efstu deild á meðan liðin í norsku 1.deildinni fagni því að sleppa við ferðalagið til Bergsøy.

Til að setja ferðalagið í samhengi bíður sjö tíma ferðalag toppliðs Elverum á næsta ári þegar liðið fer og mætir nýliðunum og þá bíður níu tíma akstur Sandefjord á næsta tímabili.

Bergsøy

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top