Bjarni Ófeigur Valdimarsson féll úr leik í úrslitakeppninni ásamt liðsfélögum sínum í KA í gærkvöldi eftir fjögurra marka tap gegn Val 38-34 í Valsheimilinu. Valur hafði betur í einvíginu 3-0 og leika þar með til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn en það skýrist í fyrsta lagi á föstudag hvort liðið mætir FH eða Haukum en jafnt er því einvígi 1-1 en liðin mætast í Kaplakrika í kvöld. Bjarni var í viðtali við Hörð Magnússon strax eftir tapið í gær en leikurinn var sýndur í beinni í Handboltapassanum. Þar var Bjarni spurður út í tímabilið hjá KA. ,,Fyrsta sem maður hugsar er, að þegar við byrjuðum tímabilið þá vissum við ekki alveg hvert við ættum að stefna. Síðan þróaðist tímabilið og við bættum okkur sem lið og bættum við okkur mannskap. Við förum í undanúrslit í bikarnum og undanúrslit í Íslandsmótinu, eitt skref í einu og við tökum vonandi næsta skref á næsta tímabili og erum að byggja upp," sagði Bjarni Ófeigur sem segir að KA eigi að stefna hátt á næsta tímabili og stefna á þá titla sem í boði eru. ,,Ég held að það sé alveg klárt í öllum keppnum. Við erum komnir með það mikla breidd og með gæði í liðinu. Ég held að það sé klárlega næsta skref að stefna á það á næsta tímabili," sagði Bjarni Ófeigur að lokum í viðali við Hörð Magnússon í Handboltapassanum í gær.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.