
Samkvæmt miðlinum RT Handball er norski landsliðsmaðurinn Magnus Abelvik Rød orðaður við möguleg félagaskipti til Paris Saint-Germain Handball fyrir tímabilið 2027/2028. Röd, sem er 28 ára hægri skytta, hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem einn af fremstu leikmönnum Evrópu í sinni stöðu. Hann leikur nú með ungverska félaginu Pick Szeged og hefur einnig átt farsælan feril með norska landsliðinu, þar sem hann hefur meðal annars unnið til silfurverðlauna á heimsmeistaramóti. Samkvæmt RT Handball eru forráðamenn PSG að skoða möguleika á að styrkja hægri skyttustöðuna, en þar eru nú leikmenn á borð við Mateo Maraš og Yahia Omar í lykilhlutverkum. Óvíst er hvort viðræður séu langt komnar, en ljóst er að slík félagaskipti myndu vekja mikla athygli í handboltaheiminum en Parísar liðið hefur ekki komist í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar tvö tímabil í röð. Stefan Madsen þjálfari liðsins er á sínu fyrsta ári með tímabilið og hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir frammistöðu liðsins í Meistaradeildinni í vetur.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.