Úrskurðaðir í tveggja ára bann
AXEL HEIMKEN / dpa Picture-Alliance via AFP

Handknattleiksdómararnir Gjorgji Nachevski og Slave Nikolov hafa verið úrskurðaðir í tveggja ára bann frá öllum verkefnum á vegum Evrópska handknattleikssambandsins (EHF). Að auki þurfa þeir að greiða 5.000 evrur hvor í sekt, sem nemur um 700 þúsund krónum. Þeir eiga þess kost að áfrýja úrskurðinum.

Niðurstaðan byggir á því að sannað þykir að þeir hafi skilað inn fölsuðum myndskeiðum úr þrekprófum sem var hluti af undirbúningi fyrir Evrópumót karla í janúar. Grunur vaknaði um málið í lok desember og voru dómararnir þá þegar teknir úr umferð og dæmdu ekki á mótinu.

Sambandið fékk að vita af því í lok desember að líklega hefði verið átt við myndefnið. Það sýni því ekki raunverulega frammistöðu þeirra á prófinu. Frekari rannsókn var gerð á myndefninu og niðurstaðan sú að dómararnir hefðu skilað inn fölsuðum myndböndum við prófið.

SVINDLUÐU Á PRÓFI OG FÁ EKKI AÐ DÆMA Á EM

Málið hefur verið til rannsóknar undanfarnar vikur þar sem farið var yfir gögn og myndbönd, auk þess sem dómararnir fengu tækifæri til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri með greinargerð.

Samkvæmt erlendum miðlum hefur EHF lagt áherslu á að málið sé alvarlegt þar sem það snerti trúverðugleika dómgæslu og jafnræði í keppni. Slík brot séu tekin sérstaklega föstum tökum þar sem líkamlegt hæfi dómara sé lykilatriði í framkvæmd leikja á hæsta stigi.

Samkvæmt reglum EHF þurfa dómarapör að standast strangar líkamlegar kröfur fyrir stórmót. Hluti af því ferli er að skila inn myndböndum af tveimur þrekprófum, annars vegar átta vikum fyrir mót og hins vegar fjórum vikum áður en það hefst. Upptökurnar eru síðan metnar af óháðum aðila, Fitgood Pro, sem sér um að staðfesta að kröfur um líkamlegt ástand séu uppfylltar.

Nachevski og Nikolov hafa um árabil verið meðal þekktustu dómara Evrópu og dæmt á stærstu sviðum, þar á meðal á stórmótum landsliða og í Meistaradeild Evrópu. Málið hefur því vakið töluverða athygli innan handboltahreyfingarinnar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top