Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik tryggði sér um síðustu helgi sæti á stórmóti í fjórða skiptið í röð eftir öruggan átta marka sigur á Portúgal. Árangurinn er enn eitt skrefið í jákvæðri þróun liðsins á undanförnum árum. Velgengnin hefur hins vegar vakið upp spurningar um fjárhagsstöðu Handknattleikssambands Íslands, sérstaklega í ljósi ársreikninga undanfarinna ára og þess kostnaðar sem fylgir aukinni þátttöku á stórmótum. Jón Halldórsson, formaður HSÍ, segir árangurinn afar mikilvægan fyrir þróun kvennahandboltans hér á landi. ,,Fyrir það fyrsta er frábært að íslenska kvennalandsliðið sé komið á stórmót fjórða árið í röð. Það ýtir undir þann árangur sem við höfum verið að ná og skiptir gríðarlega miklu máli í þróun íslenska kvennahandboltans að fá þessi verkefni áfram. Rekstur sambandsins er gríðarlega dýr en hann skiptist ekkert niður á karla og kvennalandsliðið.” Hann leggur áherslu á að sambandið starfi sem ein heild, þar sem markmiðið sé ávallt að ná sem bestum árangri, óháð kyni liða. ,,Við erum ekki karla og kvenna samband. Við erum handknattleikssamband og við stefnum á að ná besta árangri sem við getum náð. Ef við komumst á stórmót þá förum við þangað. Það hefur verið og verður þannig áfram. Það breytir því hinsvegar ekki að fjárhagsstaðan er gríðarlega erfið. Ég hef talað um það í eitt ár, síðan ég tók við sem formaður og við erum að leita leiða endalaust. Við höfum fengið svar frá okkar styrktaraðilum sem hafa brugðist við og hjálpað okkur. Við höfum fengið svar frá þjóðinni sem hefur hjálpað okkur í þeim söfnunum sem við höfum farið af stað með en við bíðum ennþá eftir svari frá ríkisvaldinu og við höfum ekki fengið nein vilyrði þaðan ennþá og bíðum enn eftir aðstoð til að stíga inn og aðstoða okkur við það stóra verkefni sem er hjá okkur. Ég kalla svolítið eftir því svari okkur er farið að lengja eftir því.” Samkvæmt Jóni er ljóst að staðan snýr ekki eingöngu að handboltanum heldur íþróttahreyfingunni í heild. ,,Það er nokkuð ljóst og það tengist ekkert bara handboltanum, það vantar meira fjármagn inn í íþróttahreyfinguna frá ríkisvaldinu,” sagði Jón Halldórsson að lokum í samtali við Handkastið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.