
Lena Margrét hefur skrifað undir samning við Fram eftir stutt stopp í atvinnumennsku í Svíþjóð þar sem hún spilaði með Skara HF. Lena er uppalin í Fram og mun koma til með að deila hægri skyttustöðunni með Dagmari Pálsdóttur. Lena skoraði 22 mörk í sænsku úrvaldseildinni með Skara í vetur. Það verður spennandi að sjá Lenu aftur í Olís deildinni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.