
Aðalþjálfarinn Simon Dahl og aðstoðarþjálfarinn Henrik Kronborg munu áfram stýra Álaborg til sumarsins 2029. Þetta tilkynnti félagið á heimasíðu sinni fyrr í dag. Simon Dahl, sem er 35 ára, kom til félagsins sumarið 2023 sem aðstoðarþjálfari en tók við sem aðalþjálfari í nóvember 2024. Síðan þá hefur liðið leikið 84 opinbera leiki, unnið 72 þeirra, gert þrjú jafntefli og tapað níu, þar af sex í Meistaradeild Evrópu. Á tímabilinu hefur liðið einnig unnið danska meistaratitilinn, tvo bikartitla og Super Cup, auk þess að komast í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar bæði 2025 og 2026. Simon Dahl segir starfið áfram vera spennandi áskorun: „Þó við höfum náð góðum árangri er alltaf ný áskorun fram undan. Þetta er félag með miklar væntingar og það hvetur mig áfram,“ segir hann og bætir við að hann sé ánægður með að halda samstarfinu áfram, ekki síst með Kronborg, sem hann eigi gott samband við. Henrik Kronborg tekur í sama streng og segir að hann hafi sjaldan unnið í jafn faglegu umhverfi með jafn háleit markmið og sterkan leikmannahóp. Hann hlakkar til að halda áfram samstarfinu og stefna enn hærra með liðinu á komandi árum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.