Sjáðu 10 mörk Einars Braga fyrir Kristianstad sem kom liðinu í undanúrslit
Raggi Óla

IFK Kristianstad mætti HF Karlskrona fjórða leik liðanna í 8-liða úrslitum í sænsku deildinni í gær. Fyrir leikinn voru Kristianstad í góðri stöðu eftir að hafa unnið tvo leiki og staðan í einvíginu var 2-1 en vinna þarf þrjá leiki til þess að komast áfram.

Einar Bragi Aðalsteinsson var allt í öllu í leik Kristianstad en hann skoraði 10 mörk í 35-41 sigri í gær sem þýðir að liðið er nú komið í undanúrslitin.

Einar Bragi varð fyrr í mánuðinum bikarmeistari með liðinu og er nú kominn í undanúrslitin í deildarkeppninni þar sem liðið mætir Alingsas HK.

Hér má sjá öll 10 mörkin hjá Einari Braga í gær:

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top