Eftir að hafa verið yfir allan seinni hálfleikinn reyndist Daníel Freyr Andrésson hetja FH-inga sem eru komnir í úrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratitilinn eftir sigur á grönnum sínum í Haukum 35-36 á Ásvöllum í kvöld í fjórða leik liðanna í undanúrslitaeinvíginu. FH vann einvígið 3-1 og mætir Val í úrslitaeinvíginu. Daníel Freyr varði í tvígang dauðafæri frá Haukum á lokasekúndum leiksins en Haukar fengu tækifæri til að koma leiknum í framlengingu en Daníel sá við Haukum í tvígang. Skarphéðinn Ívar Einarsson sem skoraði 13 mörk fyrir Hauka klikkaði skoti af sex metrunum en Jón Ómar Gíslason náði frákastinu en lét Daníel verja frá sér aftur og í kjölfarið rann leikurinn út í sandinn. Össur Haraldsson var næst markahæstur í liði Hauka með átta mörk. Hægt er að sjá þessar tvær ótrúlegu markvörslur Daníels Freys í myndskeiðinu hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.