

Leikstjórnandinn, Rea Barnabás sem gekk í raðir Stjörnunnar frá Pick Szeged fyrir tímabilið meiddist illa í leik með JS Cherbourg í frönsku B-deildinni á dögunum. Samningi Ungverjans við Stjörnuna var rift eftir síðasta leik Stjörnunnar gegn FH í Olís-deild karla fyrir áramót og gekk hann í raðir JS Cherbourg í kjölfarið. Félagið tilkynnti á dögunum að Barnabás hafi leikið sinn síðasta leik fyrir félagið á tímabilinu eftir að hafa handarbrotnaði í leik gegn Pau Billere sem tapaðist 23-32. Er honum þakkað fyrir hollustu hans, fagmennsku og skuldbindingu fyrir félagið og óskað góðs gengis í framhaldinu. Barnabás náði sér ekki á strik með Stjörnunni fyrir áramót en liðið vann þó ekki leik í Olís-deild karla eftir áramót. Stjarnan tryggði sér sæti í Olís-deild karla í vikunni eftir sigur á Herði í umspili um laust sæti í Olís-deildinni á næstu leiktíð eftir að hafa endað í 11.sæti Olís-deildarinnar í vetur. „Ég veit ekki ennþá hvar ég spila á næstu leiktíð því við höfum ekki enn rætt framtíð mína við félagið. Það er þó ljóst að við þurfum að setjast niður og ræða málin, þar sem þjálfarinn okkar fer í sumar,“ sagði Rea Barnabás í samtali við Délmagyarország. Rea Barnabás hefur líkað vel við franska handboltaumhverfið ,,Mér hefur líkað mjög vel lífið í Frakklandi, ég elska að búa hér. Deildin er sterk, mér líkar umgjörðin og aðstaðan, sem er fagleg hjá öllum liðum. Hvað leik minn varðar, þá hefði ég viljað fá aðeins meiri spilatíma, en ég geri mér grein fyrir því að ég hef aðeins verið hér í tvo og hálfan mánuð, þannig að það er ekki raunhæft að spila sextíu mínútur. Ég naut þess að spila, það eina sem veldur mér vonbrigðum er að tímabilinu lauk of snemma fyrir mig, sagði Rea Barnabás ennfremur.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.