Góðum árangri fylgir mikið af fyrirspurnum
ADA

Snorri Steinn Guðjónsson segist hafa fundið fyrir áhuga erlendis frá á síðustu misserum, en að ákvörðunin um að halda áfram með íslenska landsliðið hafi á endanum vegið þyngst.

Þetta kom fram í viðtali við Snorra í kjölfar þess að tilkynnt var um framlengingu samninga hans og Arnórs Atlasonar við Handknattleikssamband Íslands í vikunni, þar sem hann var meðal annars spurður hvort einhver tilboð að utan hefðu reynst honum freistandi.

,,Það var minn vilji að halda alltaf áfram með landsliðið og hvort einhver önnur tilboð hafi verið freistandi veit ég ekki alveg. Ég fann og finn það mjög sterkt að mér finnst ég ekki vera búinn. Ef eitthvað er finnst mér ég vera nýlagður af stað í þetta verkefni með þessu liði. Þar af leiðandi var ég ekkert að leita af einhverju öðru. Þetta ferli og þessar samningaviðræður trufluðu mig ekki neitt. Auðvitað fylgir góðum árangri mikið af fyrirspurnum og mikið af þreifingum en lengra fór ég ekkert með neitt svoleiðis," sagði Snorri Steinn og bætti við:

,,Ef það fer ekki á neitt annað stig er óþarfi að vera tjá sig eitthvað um það.”

SNORRI STEINN RÆÐIR SEX ÁRA SAMNING SINN VIÐ HSÍ

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top