

Þýski landsliðsmaðurinn Renars Uscins leikmaður Hannover-Burgdorf er sagður vera á radar hjá tveimur af stærstu félögum Evrópu, THW Kiel og Paris Saint-Germain, samkvæmt nýjustu fréttum úr handboltaheiminum. Uscins, sem hefur vakið mikla athygli stærstu félaga í Evrópu en hann var lengi vel orðaður við Flensburg á dögunum en hann er talinn einn efnilegasti hægri skytta heims í dag. Áhugi bæði Kiel og PSG undirstrikar það. Eftir að Flensburg kynnti hinsvegar Viggó Kristjánsson og Kiko Costa sem nýja leikmenn liðsins frá og með sumrinu 2027 er ljóst að þeir hafa lítið sem ekkert að gera með Renars Uscins. Renars Uscins er þriðji markahæsti leikmaður Hannover-Burgdorf á tímabilinu með 114 mörk tveimur mörkum færra en liðsfélagi hans í þýska landsliðinu, Justus Fischer. Vinstri hornamaðurinn, August Baskar Pedersen er hinsvegar lang markahæstur með 170 mörk á tímabilinu. Hjá Kiel hefur félagið lengi verið þekkt fyrir að byggja upp sterkan kjarna þýskra landsliðsmanna, og gæti Uscins fallið vel inn í það umhverfi. Á sama tíma er PSG stöðugt að leita leiða til að styrkja lið sitt í baráttunni Meistaradeild Evrópu þar sem liðinu hefur mistekist tvö tímabil í röð að komast í 8-liða úrslit keppninnar. Athygli vekur að Handkastið greindi frá því á dögunum að norski landsliðsmaðurinn Magnus Abelvik Rød væri einnig orðaður við PSG. Báðir leika þeir í stöðu hægri skyttu, sem gæti bent til þess að franska félagið sé að undirbúa breytingar eða aukna samkeppni í þeirri stöðu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.