Þýska stórliðið THW Kiel mun missa egypska landsliðsmanninnn Mohab Abdelhak þegar hann gengur til liðs við norður-makedónska félagið RK Vardar í sumar. Frá þessu greinir Vardar á samfélagsmiðlum sínum, þar sem félagið staðfestir komu hins 22 ára gamla hægri skyttu sem kemur frá Kiel. Abdelhak hóf feril sinn hjá Al Ahly í heimalandinu, lék síðar í Frakklandi með Nîmes og gekk svo til liðs við Kiel. Hjá Vardar er mikill metnaður fyrir komandi tímabil og lítur félagið á Abdelhak sem mikilvæga viðbót í hópinn. Félagið hefur á undanförnum árum verið að byggja sig upp á ný eftir að hafa áður verið meðal fremstu liða Evrópu, og þessi kaup eru liður í þeirri uppbyggingu. Leikmaðurinn sjálfur segir félagaskiptin stórt skref á ferlinum og hlakkar til að takast á við nýjar áskoranir með metnaðarfullu liði.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.