Fyrrum þjálfari norska landsliðið orðaður við nýliðana
FRANCOIS LO PRESTI / AFP

Samkvæmt heimildum Handballtransfer er fyrrum þjálfari norska landsliðsins Jonas Wille orðaður við þjálfarastól hjá dönsku nýliðunum í HØJ Elite frá og með næsta tímabili.

HØJ Elite hefur átt erfitt uppdráttar á yfirstandandi leiktíð og er í harðri fallbaráttu í dönsku úrvalsdeildinni. Þrátt fyrir það virðist félagið þegar vera farið að horfa til næsta tímabils, þar sem metnaðarfull áform eru sögð vera í mótun.

Jonas Wille hefur áður þjálfað í dönskum handbolta með góðum árangri hjá Mors-Thy Håndbold.

HØJ Elite hefur á undanförnum árum safnað til sín sterkum leikmannahópi og bundnar eru vonir við að nýr þjálfari geti náð að stilla saman strengi innan liðsins og byggja upp stöðugleika til framtíðar.

Engin staðfesting hefur fengist frá félaginu eða Wille sjálfum, en samkvæmt heimildum er þetta eitt heitasta þjálfaramál danska handboltans um þessar mundir.

Leikmenn á borð við Hampus Wanne, Michal Damgaard og Hans-Lindberg leika með liðinu í dag en í sumar fær liðið Jannick Green frá PSG, Lasse Andersson frá Füchse Berlin, Axel Månsson frá Kristianstad og fleiri leikmenn.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top