Þórhildur Braga framlengir við HK

Þórhildur Braga hefur gert nýjan tveggja ára samning við Handknattleiksdeild HK.

Þórhildur er uppalin í HK en gekk í raðir Hauka árið 2017 og spilaði með þeim í nokkur ár eða til ársins 2021. Hún er fædd árið 1997 og hefur síðustu þrjú ár spilað með meistaraflokki HK sem tryggði sér á dögunum sæti í Olísdeildinni á næsta keppnistímabili. Hún getur leyst allar stöðurnar fyrir utan.

Í vetur skoraði hún 34 mörk í 21 leik fyrir félagið í Grill 66 deildinni.

"Liðið er að mestu byggt upp á ungum leikmönnum og hefur verið mikill styrkur fyrir þá að hafa reynslubolta eins og Þórhildi í liðinu. Við í HK erum sérlega ánægð með að hafa tryggt okkur krafta hennar næstu tvö ár" segir í tilkynningu frá HK

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top