

Danska handknattleikssambandið hefur ráðið Henrik Møllgaard sem nýjan aðstoðarþjálfara danska landsliðsins. Þetta tilkynnti danska sambandið í dag. Hann tekur við starfinu 1. september 2026 og gerir samning til tveggja ára. Á sama tíma heldur hann áfram störfum sínum sem aðstoðarþjálfari hjá franska félaginu PSG. ,,Ég hlakka til að stíga inn í nýtt hlutverk þar sem ég get gefið eitthvað til baka og dregið úr reynslu og þekkingu sem ég hef öðlast í gegnum marga alþjóðlega leiki og úrslitakeppnir. Ég hef átt einstaka reynslu með landsliðinu bæði innan vallar sem utan," sagði Møllgaard. Hann sagði að í mörg ár hafi hann sótt orku í landsliðið og það hafi gefið honum mikið á leikmannaferlinum. Sér í lagi á loka árum hans á ferlinum þegar hann hafi verið í leiðtogahlutverki hjá danska landsliðinu. Henrik Møllgaard lék 230 landsleiki fyrir Danmörku. Hann hefur meðal annars unnið tvö Ólympíugullverðlaun og fjóra heimsmeistaratitla. Hann tapaði síðan tvívegis úrslitaleik Evrópumótsins. Landsliðsþjálfarinn Nikolaj Jacobsen segir spenntur fyrir því að vinna með Henrik Møllgaard, sem hann spáir að muni eiga frábæran þjálfaraferil. ,,Ég er mjög ánægður með að Henrik Møllgaard hafi ákveðið að taka við starfinu. Hann hefur prófíl sem passar vel við liðið og er nær leikmönnunum hvað varðar aldur. Hannn er ótrúlega vel metinn bæði af mér og leikmönnunum. Á sama tíma njótum við mikils af reynslu hans frá mörgum alþjóðlegum leikjum og úrslitakeppnim." ,,Ég er ánægður með að Møllgaard hafi valið að fara þjálfaraleiðina. Hann gæti verið spennandi þjálfari. Hann hefur alltaf haft sínar eigin skoðanir og sjónarmið um hvernig hlutirnir ættu að vera gerðir. Ég hlakka til að hjálpa Henrik að byrja á því sem ég vona að verði góður, langur og farsæll þjálfaraferill."

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.