Norðurlöndin: Sävehof áfram í undanúrslit
BWM)

Einn leikur fór fram í Svíþjóð í kvöld en í Stokkhólmi fór fram oddaleikur Hammarby og Sävehof. Flestir reiknuðu með sigri Hammarby en sigurliðið mætir Malmö í undanúrslitunum.

Heimaliðið fór betur af stað og náði fljótt forystunni en gestirnir náðu að vinna það niður og leiddu með einu marki í hálfleik, 20-21. Gestirnir héldu áfram í seinni hálfleiknum og heimamenn áttu erfitt með að halda í við gestina, Sävehof komst fimm mörkum yfir þegar um korter var eftir og reyndist það bil of mikið fyrir Hammarby.

Fór svo að lokum að gestirnir unnu frábæran sigur, 33-38 og er því komið áfram í undanúrslitin. Birgir Steinn Jónsson skoraði fimm mörk úr fimm skotum og fékk eina brottvísun að auki en liðið mætir Malmö í undanúrslitunum sem hefjast á föstudagskvöldið næstkomandi.

Í hinu einvíginu mætast deildarmeistarar Kristianstad og Alingsås en það einvígi hefst á fimmtudagskvöldið.

Úrslit kvöldsins:

Hammarby 33-38 Sävehof

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top